Séra Bjarni útskýrir mál sitt: Fegurðinni fórnað fyrir kappið í UFC

Séra Bjarni Karlsson birtir grein í Fréttablaðinu í dag þar sem hann fylgir eftir umfjöllun Vísis um orð hans á Facebook í kjölfarið á bardaga Gunnars Nelsson. Þar sagði hann sömu kenndir að verki sem fá menn til að horfa á klám og svo bardagaíþróttir.

Bjarni segir að eftir að hafa horft á allmarga UFC-bardaga þyki honum fegurðinni fórnað fyrir kappið.

Ljótleikinn í þessu er sá að í stað þess að leggja andstæðinginn með glímubrögðum er hann afmennskaður með höggum og spörkum svo bein jafnvel brotna og menn berjast og verjast í blóði sínu uns annar liggur við þröskuld örkumlunar á meðan áhorfendaskarinn fagnar.

Auglýsing

Hann leggur áherslu á að hann sé ekki að segja að iðkun fjölbragðaglímu hljóti alltaf að fela í sér ljótleika eða að starf Mjölnis og annarra félaga sem kenna fólki glímutök sé rangt.

„Ég held raunar að bardagaíþróttir séu mikilvægar og gott fyrir allt fólk að iðka þær. Mér þykir þessi tiltekna íþróttakeppni eins og hún birtist almenningi í fjölmiðlum þó ekki bera með sér þá fegurð sem ég tel að eigi að fylgja íþróttum.“

Um tenginguna við klámið segir hann að klám er lýsing á kynferðislegu samneyti þar sem fegurðin er ofurliði borin.

„Ég velti því s.s. fyrir mér hvort vinsældir UFC-keppninnar standi í samhengi við klámgildi hennar í þeim skilningi að á sama hátt og klám rænir kynferðisleg samskipti fegurð sinni ræni UFC-keppnin íþróttina sinni fegurð. Eftir stendur greddan og kappið, hvort tveggja gott og gilt en ófullnægjandi eitt og sér.“

Bjarni segir einnig að við megum vera stolt af Gunnari Nelson.

„Hann ber með sér allt sem góðan íþróttamann prýðir; hógværð og háttvísi, ögun og einbeitni. Persóna hans sýnir að sönn íþrótt varðar fyrst sigur iðkandans yfir sjálfum sér. Allt annað kemur á eftir.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing