Skiptar skoðanir eru um afstöðu Gísla Marteins til hjálmanotkunar. Gísli sagði á Pressunni í vikunni rangt að senda þau skilaboð út í þjóðfélagið að það sé hættulegra að hjóla en að aka bíl.
Hann spyr hvers vegna þessi ofuráhersla sé á hjálma á reiðhjólum eingöngu.
Sjá einnig: Ökumenn hrópa ókvæðisorðum að Gísla Marteini fyrir að nota ekki hjálm
Gísli Marteinn notar ekki hjálm við hjólreiðar. Hann sagði á Pressunni miklu fleiri deyja á hverju ári úr höfuðáverkum inni í bílum heldur en á reiðhjólum.
Samt skrúfa jeppakarlar og kerlingar niður gluggann á bílum sínum og hrópa hjálmlaus að mér ókvæðisorð yfir því að ég sé ekki með hjálm þar sem ég hjóla í rólegheitunum framhjá þeim á gangstéttinni.
Hönnuðurinn Friðrik Steinn Friðriksson hefur búið til leik sem gengur út á lítið annað en að setja hjálm á hausinn á Gísla Marteini.
Þú getur spilað leikinn hér fyrir neðan.