Sigmundur Davíð hafnar gagnrýni og segir þöggun ekki leysa vandann

Í stöðuuppfærslu á samfélagsmiðlinum Facebook svarar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gagnrýni sem komið hefur fram í kjölfar skrifa hans um stöðu öryggismála í Svíþjóð. Hann dregur hvorki í land né mildar orð sín, heldur beinir spjótum sínum að forsendum umræðunnar og þeirri þöggun sem hann segir hafa ríkt um vandann.

Í færslunni bendir hann á að hratt hafi verið brugðist við með pistli sem studdur er af tveimur Íslendingum búsettum í Svíþjóð, á sama tíma og ekki hafi unnist tími til að taka mark á áralöngum aðvörunum frá fólki í landinu.

Auglýsing

„Það er ekki gott að segja hvers vegna umræddur pistill var skrifaður á innan við klukkutíma en á mörgum árum hefur ekki unnist tími til að skrifa pistil upp úr ótal aðvörunum Íslendinga sem búsettir eru í Svíþjóð.“

Þöggun breytir ekki staðreyndum

Sigmundur Davíð gerir í færslunni kaldhæðnar athugasemdir við orðalagið sem notað er í umræðunni og bendir á innbyggða mótsögn í því.

„Í ljósi þess hvar skrifin birtust er þó e.t.v. furðulegast af öllu að talað sé um „Íslendinga sem búsettir eru í Svíþjóð”,“ skrifar hann og bætir við:
„Ef þeir eru búsettir í Svíþjóð hljóta þeir að vera Svíar samkvæmt skilgreiningum sama fólks.“

Hann rifjar jafnframt upp hvernig sænsk stjórnvöld brugðust við þróun afbrota eftir aldamót og dregur þá ályktun að þöggun hafi ekki skilað árangri.

„Skömmu eftir aldamót bönnuðu Svíar ýmsa tölfræði tengda afbrotum svo hún hefði ekki áhrif á umræðuna í samfélaginu. Það leysti ekki vandann,“ skrifar hann.

Í lok færslunnar varar Sigmundur Davíð við því að horfa fram hjá vandanum eða færa umræðuna annað, hvort sem litið er til Svíþjóðar eða Íslands.

„Það að líta fram hjá vandanum er þó ekki líklegt til að stuðla að því að gerðar verði nauðsynlegar ráðstafanir til að bæta stöðuna í Svíþjóð og stuðla að öryggi íbúa landsins, sama hvaðan þeir koma. Sama gildir um Ísland.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing