Sigmundur Davíð vill að ríkisstjórnin setji bráðabirgðalög í vikunni

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Framsóknarflokksins, vill ríkisstjórnin setji bráðabirgðalög í þessari viku svo hægt sé að halda áfram vinnu við að tengja Þeistareyki við Kröflu og uppbygginguna á Bakka.

Verði þetta ekki gert gæti „því mikilvæga verkefni verið stefnt í óvissu mánuðum saman og það jafnvel sett í uppnám fyrir vikið.“

Þetta kemur fram í aðsendu bréfi hans í Morgunblaðinu í dag.

Þar segir hann að eitt af stóru málunum sem ekki kláruðust vegna ákvörðunar um að stytta kjörtímabilið og falla frá því að leggj fram fjárlög hafi verið áformuð stórsókn í byggðamálum.

Hann segir að stjórnmálamenn þurfi að hafa þor til að beita sér fyrir því að ríkisvaldið liðki fyrir uppbyggingu á sviði iðnaðar utan höfuðborgarsvæðisins.

„Slíkan hvata skortir ekki aðeins hjá hinum frjálsa markaði heldur líka í stjórnkerfinu. Þess vegna þurfa kjörnir fulltrúar almennings að vera óhræddir við að beita sér til að rétta þá skekkju af. Nýleg dæmi sýna að ekki aðeins hefur kerfið tilhneigingu til að þvælast fyrir því að slík verkefni fari af stað, það getur jafnvel gripið inn í til að stöðva stór og mikilvæg verkefni sem eru þegar farin af stað. Ríkisstjórnin þarf strax í þessari viku að setja bráðabirgðalög svo hægt sé að halda áfram vinnu við að tengja Þeistareyki við Kröflu og uppbygginguna á Bakka,“ segir Sigmundur einnig.

Auglýsing

læk

Instagram