Halldór Halldórsson setti í október árið 2013 myndavél í gang til að taka upp framvindu uppbyggingarinnar á Fosshótelinu sem var opnað nú í júní, en það er á 19 hæðum og er stærsta hótel landsins. Þetta kemur fram á mbl.is.
Í myndbandinu hér fyrir neðan má sjá hótelið rísa á 42 sekúndum.
Á mbl.is kemur fram að myndbandið samanstandi af um 50 þúsund myndum. Halldór vinnur hjá Reiknistofu bankanna og segir í samtali við mbl.is lítil tölvumyndavél í skrifstofunni á fimmtu hæð á Höfðatorgi hafi séð um myndatökuna.
Um 2-3 mánuði vantar inn í myndbandið þar sem tæknibúnaðurinn klikkaði.