Önnur plata Of Monsters and Men, Beneath the Skin, kom út í vikunni. Hljómsveitin flutti lagið Crystals í spjallþætti Jimmy Fallon í vikunni en myndband af flutningnum má sjá hér fyrir neðan.
Sjá einnig: Of Monsters and Men í beinni útsendingu í vinsælasta morgunþætti Bandaríkjanna
Of Monsters and Men er á leiðinni í tónleikaferð um heiminn sem hefst í Lundúnum í næstu viku. Þegar er uppselt á fjölda tónleika.
Hér er Of Monsters and Men hjá Jimmy Fallon.
Sala plötunnar fer vel af stað og er hún farin að skjóta upp kollinum á vinsældarlistum um allan heim.
Platan er í komst í efsta sæti iTunes listans í Bandaríkjunum í vikunni en er einnig komin inn á listana í Bretlandi, Kanada, Brasilíu, Ástralíu, Austurríki, Þýskalandi, Frakklandi, Ítalíu, Spáni, Danmörku, Svíþjóð og Noregi, svo einhver lönd séu nefnd.