Sjóðandi heitt vatn úr Strokki skvettist á fjölskyldu: Birta skelfilegt myndband af atvikinu

Fimm manna fjölskylda brenndist þegar heitt vatn úr goshvernum Strokki skvettist á þau í vikunni. Fjölskyldan hefur birt myndband af atvikinu á Youtube sem má sjá hér fyrir neðan. DV greinir frá málinu.

Atvikið átti sér stað á mánudag og yngstu börnin hlutu 1. og 2. stigs bruna. Fjölskyldan er íslensk en búsett í Noregi og var stödd hér á landi í fríi. Í skilaboðum við myndbandið á Youtube segjast þau afar ánægð með skjót og fagmannleg viðbrögð viðstaddra.

Í myndbandi heyrist í dóttur okkar gráta af sársauka eftir að sjóðandi heitt vatnið skvettist á hana.

Auglýsing

Fjölskyldan var innan öryggismarka þegar atvikið átti sér stað. Þau segjast telja að um alvarlegan öryggisgalla sé að ræða sem þurfi að taka alvarlega af rekstraraðilum svæðisins, sem bera ábyrgð á öryggi ferðamanna.

„Þetta var víst ekki í fyrsta skipti sem þetta gerist. Ég vil þakka starfsfólki verslunarinnar Geysis fyrir skjót viðbrögð,“ segja þau á Youtube.

Það er ástæða til að vara viðkvæma við myndbandinu.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing