Beau Willimon, aðalhandritshöfundur þáttanna House of Cards, er staddur hér á landi ásamt Michelle, eiginkonu sinni. Hjónin mættu í viðtal á útvarpsstöðinni Radio Iceland í gær en hægt er að hlusta á það hér fyrir neðan.
Þau virðast raunar hafa tekið ástfóstri við útvarpsstöðina og Willimon tísti um það á dögunum.
What I learned today here in Iceland: @RadioIceland is THE BJEST. Due in large part to host @GigjaBjorns. Can't stop listening.
— Beau Willimon (@BeauWillimon) May 22, 2015
I'm dead serious, folks. @RadioIceland rocks. You should all stop what you're doing and start listening online immediately.
— Beau Willimon (@BeauWillimon) May 22, 2015
Hjónin færðu útvarpskonunni Gígju Björnsdóttir meira að segja afmælisgjafir í viðtalinu, bakkelsi, súkkulaði og rósavín.
Willimon segir þau hafa byrjað að hlusta á útvarpsstöðina nánast um leið og þau lentu á Íslandi.
Við lentum á Íslandi í síðustu og viku. Á leiðinni á hótelið vorum við að flakka á milli stöðva og rákumst á Radio Iceland. Við heyrðum í Gígju og hún var frábær. Við lögðum bílnum og sátum í dágóða stund og hlustuðum á ykkur tvö.
Willimon er allt í öllu í House of Cards. Hann aðlagaði þættina að bandarískum veruleika og skrifar þætti sjálfur ásamt því að stýra liði handritshöfunda.
Viðtalið sem Darren Foreman tók ásamt Gígju má heyra hér fyrir neðan.