Skoðaði tvíburaturnana skömmu fyrir árásina

Fótboltadómarinn Kristinn Jakobsson er í viðtali í Fréttablaðinu í dag. Hann spjallar um úrslitaleikinn umdeilda um helgina en rifjar líka upp þegar hann var staddur í New York 10. september 2001:

Ég var á leið til Trínidad og Tóbagó til að dæma og millilenti í New York. Ég hitti félaga minn og við fórum upp í tvíburaturnana aðeins nokkrum klukkutímum áður þeim var grandað. Þar var ég staddur bara út af því að ég var að fara að dæma knattspyrnuleik.

Annars er viðtalið gott. Kristinn er meðal annars spurður út í vítaspyrnudóminn í lok leiks FH og Stjörnunnar sem réði úrslitum í leiknum. „Ég sá bara brotið og flautaði. Það eru ósjálfráð viðbrögð hjá mér og annað skiptir engu máli, hvorki hvaða lið á í hlut eða á hvaða mínútu atvikið gerðist,“ segir hann.

Auglýsing

Mikið hefur verið rætt um dómgæsluna í leiknum en Sigurður Óli Þórleifsson, annar aðstoðardómara Kristins, gerði mistök þegar hann flaggaði ekki Ólaf Karl Finsen rangstæðan í fyrra marki Stjörnunnar. Kristinn segir að Sigurður Óli hafi viðurkennt mistök sín þegar hann sá atvikið í sjónvarpi. „Svona lagað er eins og að brenna af víti í úrslitaleik. Menn þurfa að lifa með þessu.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing