Skúli Mogensen stoltur af WOW ævintýrinu: „Nú tek­ur nýr kafli við“

Eins og við greindum frá í dag hefur Icelandair keypt flugfélagið WOW. Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW segist stoltur, en nú taki við nýr kafli.

Stjórn Icelandair Group gerði kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í flugfélaginu WOW air. Kaupin eru meðal annars gerð með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Icelandair Group, samþykki Samkeppniseftirlitsins og niðurstöðu áreiðanleikakönnunar.

Skúli segist stoltur af þeim árangri og þeirri uppbyggingu sem WOW air hafi náð á undanförnum árum og er þakklátur fyrir þær viðtökur sem flugfélagið hefur fengið frá fyrsta degi.

„Við höf­um byggt upp öfl­ugt teymi sem hef­ur náð eft­ir­tekta­verðum ár­angri og verið brautryðjandi í lággjalda­flugi yfir Norður-Atlants­hafið. Nú tek­ur nýr kafli við þar sem WOW air fær tæki­færi til að vaxa og dafna með öfl­ug­an bak­hjarl eins og Icelanda­ir Group sem mun styrkja stoðir fé­lags­ins enn frek­ar í alþjóðlegri sam­keppni,“ segir hann.

Auglýsing

læk

Instagram