Snoop Dogg er mættur til landsins en hann heldur partí í kvöld sem DJ Snoopadelic. Árvökull lesandi Nútímans sendi Nútímanum þessar myndir af rapparanum þegar hann mætti til landsins í morgun klæddur í gráan Adidas-galla og bláum, loðnum inniskóm.
Eina sem hann gerði í Leifsstöð var að kaupa sér vindla
Það leið nánast yfir stelpuna sem afgreiddi hann, samkvæmt heimildum
Hann var annars bara slakur að sögn viðstaddra
Sjá einnig: Setja upp flöskuborð í Laugardalshöll
Eins og Nútíminn sagði frá í gær verða sett upp þrjú sérstök VIP flöskuborð og eitt lúxusflöskuborð fyrir gesti sem vilja gera sérstaklega vel við sig.
Borðin verða á einkasvæði með sófum og borðum og í tilkynningu frá Nordic Events kemur fram að gestirnir fái góða þjónustu.
Ekki þarf að hafa áhyggjur af neinu því gæslan sér um að vakta VIP gestina. Skreytingar munu prýða svæðið og sófar svo það fari vel um gestina. Alls eru þrjár flöskur með hverju borði og VIP miða sem gildir fyrir tvo.
Þau sem sitja við þessi borð fá að hitta Snoop Dogg en það verður eflaust erfitt að toppa þá selfí.
Ásamt Snoop Dogg koma fram Blaz Roca ásamt Herra Hnetusmjör, Joe Frazier, Dabba T og Sesar Afrikanus, Úlfur Úlfur ásamt hljómsveit, DJ Gísli Galdur, Shades of Reykjavík og KSF ásamt Agli Tiny úr Quarashi og Alviu Islandiu.

