Rapparinn Snoop Dogg er farinn af landi brott eftir að hafa stoppað í sólarhring á Íslandi. Hann kom fram sem plötusnúðurinn DJ Snoopadelic í partíi Laugardalshöll í gærkvöldi.
Snoop Dogg var mættur í Leifsstöð snemma í morgun og sendi Íslendingum kveðju úr flugvél Icelandair sem fór svo með hann til Þýskalands. Hann kemur fram í München í kvöld.
Það heyrist ekki vel hvað hann segir en hann virðist vera ánægður með stemninguna í Laugardalshöll í gær og þakkar fyrir sig.