Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir að fjármagna ekki nýja löggæsluáætlun á sama tíma og fé renni til utanríkisráðuneytisins og erlendra hinsegin samtaka. Þetta segir hann í færslu á X í dag, þar sem hann vísar einnig í umfjöllun um skipulagða glæpastarfsemi hér á landi.
Snorri vísar í „nýja yfirferð Morgunblaðsins“ og segir að samkvæmt henni séu yfir tuttugu skipulagðir glæpahópar, sem flestir hafi rík tengsl við útlönd, starfræktir á Íslandi. Hann segir vopnaútköllum lögreglu hafa fjölgað og að tilteknir hópar „hika ekki við að veifa skotvopnum á götum úti“. Þá nefnir hann að lögreglan á Suðurnesjum hafi „nýlega“ vísað fjórum mönnum úr landi sem sagðir eru sænskir ríkisborgarar og voru að sögn lögreglunnar ráðnir til að fremja ofbeldisverk hér.
Lögreglan á Suðurnesjum sagði frá málinu í vikunni, en samkvæmt mbl.is og Vísi voru mennirnir fjórir stöðvaðir á Keflavíkurflugvelli um mitt ár 2025 og vísað úr landi með vísan til allsherjarreglu. Stefán Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum, sagði þá hafa komið með flugi frá þremur löndum og að lögregla hafi talið þá komna til að fremja alvarlegt ofbeldisbrot fyrir skipulagðan brotahóp. Innan við tveimur vikum síðar var einn þeirra handtekinn í Svíþjóð fyrir tilraun til manndráps.
Fjármögnun löggæsluáætlunar
Snorri beinir spjótum sínum einkum að Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra og löggæsluáætlun fyrir árin 2027 til 2031 sem var kynnt á miðvikudag. Samkvæmt RÚV á lögreglumönnum að fjölga um 200 fyrir árið 2031 og lögð er sérstök áhersla á skipulagða brotastarfsemi og netöryggi. RÚV fjallaði sama dag um að óvíst væri hvort fjármagn fylgdi fjölguninni.
Snorri segir að dómsmálaráðherra hafi „að því er virðist“ þurft að halda opinberan blaðamannafund „til þess að grátbiðja um peninga í lögregluna“ og lýsir kynningu áætlunarinnar sem bjartsýniskasti án innistæðu. Hann segir að síðar sama dag hafi verið „tekinn af allur vafi“ um að ekkert fjármagn fáist í verkefnið. Í stað þess að „betla pening á opinberum vettvangi“ ætti ráðherrann að byrja á að ræða við formann flokks síns, að sögn Snorra, sem bætir við að hann voni að „samskiptavandinn innan Viðreisnar“ sé ekki of mikill til þess.
150 og 230 milljónir til utanríkismála
Snorri vill að utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, verði beðin um að nota fé ráðuneytisins í „alvöru aðgerðir fyrir almenning í landinu“. Hann gagnrýnir sérstaklega að 150 milljónir króna hafi verið gefnar „handahófskenndum hinsegin samtökum í Bandaríkjunum“ og segir upphæðina geta svarað til um fimm sérsveitarmanna í heilt ár. Þá gagnrýnir hann að ráðið hafi verið „Evrópusambandsaktívista án starfslýsingar“, án þess að tilgreina hverja hann á við.
Samkvæmt Stjórnarráðinu undirritaði Þorgerður Katrín í New York í september 2025 samning um 150 milljóna króna framlag til átján mánaða til samtakanna Outright International, sem styðja grasrótarsamtök hinsegin fólks og sinna málsvarastarfi á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Stjórnarráðið lýsti samningnum sem áframhaldandi stuðningi Íslands við samtökin.
Snorri gagnrýnir einnig áform um að bæta „230 milljónum til að efla aðalskrifstofu utanríkisráðuneytisins“. Í greinargerð með fjárlagafrumvarpi 2027 segir að framlög til utanríkisþjónustunnar hækki um 300 milljónir króna til að styrkja hagsmunagæslu og alþjóðasamstarf á óvissutímum, vegna formennsku Íslands í Eystrasaltsráðinu og til eftirfylgni við setu Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Þar af fari 230 milljónir til aðalskrifstofu ráðuneytisins og 70 milljónir til sendiskrifstofa erlendis. Í sömu greinargerð kemur fram að fjárheimild til samstarfs um öryggis- og varnarmál hækki um 2.300 milljónir króna.
Sérsveitin og kostnaðurinn
Snorri heldur því fram að til sé „sannarlega til nægur peningur“ í öryggis- og varnarmál hjá utanríkisráðuneytinu, en að slík mál útheimti ekki síður fjármögnun hjá dómsmálaráðuneytinu, „þar sem þunginn í þessum málum liggur“. Samkvæmt greiningu Vörðu frá því í september fjölgaði vopnuðum útköllum sérsveitar ríkislögreglustjóra úr 56 árið 2014 í 424 árið 2025 og störfuðu 46 sérsveitarmenn, tíu færri en heimild er fyrir. Varða áætlar að það kosti 300 til 400 milljónir króna á ári að fjármagna þessi tíu stöðugildi.
Snorri lýkur færslunni á orðunum: „Enn sem fyrr hikar ríkisstjórnin ekki við að stækka báknið, en hunsar um leið þarfir almennings.“
Samkvæmt nýrri yfirferð Morgunblaðsins eru yfir tuttugu skipulagðir glæpahópar, sem flestir hafa rík tengsl við útlönd, starfræktir hér. Vopnaútköllum lögreglu hefur fjölgað og tilteknir hópar hika ekki við að veifa skotvopnum á götum úti. Það er einnig sagt frá því að lögreglan á Suðurnesjum hafi nýlega náð að brottvísa fjórum mönnum, sem sagðir eru vera sænskir ríkisborgarar, sem voru að sögn lögreglunnar ráðnir til að koma hingað til lands til að fremja ofbeldisverk.
Snorri Másson (@5norri) 1. nóvember 2026