Snorri Másson,þingmaður Miðflokksins, benti á gamansaman hátt á það að Þorsteinn V. Einarsson, sem hann lýsir sem pólitískum aktivista og eldheitum gagnrýnanda sínum, kenni nú kynjafræði við Menntaskólann í Kópavogi.
Hann birtir færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann spyr: „Er eðlilegt að nemendur í MK séu skyldugir til þess að hlusta á skoðanir hans mörgum sinnum í viku?“
Í færslunni rifjar Snorri upp fyrri samskipti þeirra Þorsteins, meðal annars þegar sá síðarnefndi hafi hvatt yfir 20.000 fylgjendur sína til að beina athygli að konu í Bónus sem neitaði að selja sjálfsútgefna fræðslubók hans.
Atvikið hafi orðið að opinberu máli og leitt til þess að Þorsteinn beindi spjótum sínum að Snorra enn frekar.
„Það hefur verið regla að halda pólitík utan skólastofu“
Snorri segir að þó hann hafi oft áður gagnrýnt pólitíska innrætingu í skólakerfinu, þá sé núverandi staða farin að ganga „eiginlega einum of langt.“
Hann segir að þó kennarar hafi alltaf haft sínar pólitísku skoðanir, hafi sú óskrifaða regla gilt að reyna að halda þeim utan skólastofunnar, sérstaklega í skylduáföngum þar sem nemendur hafi ekkert val.
„Það fallega við íslenska kerfið hefur einhvern veginn alltaf verið það að kennarar hafa nú alltaf haft pólitískar skoðanir,“ skrifar Snorri.
„En það hefur verið þessi fallega regla að reyna að halda þeim utan við skólastofuna, að hlífa börnunum og nemendum sem verða að sitja undir þessum skoðunum.“
Snorri sakar Þorstein um að nýta kennsluna til árása á sig
Í færslunni segist Snorri hafa fengið senda mynd úr kennslustofu þar sem nafn hans kemur fyrir í glærum Þorsteins.
Hann segist hafa áhyggjur af því að persónulegar skoðanir Þorsteins á honum sjálfum endurspeglist í kennslunni.
„Guð veit hvað hann er að segja um mig í tímum, ekki er það allt fallegt samkvæmt mínum upplýsingum,“ skrifar hann.
„Er eðlilegt að börn í skyldunámi þurfi að sitja undir þessu?“
Lýsir kynjafræði sem „vinstri, vók pólitík“
Snorri endar færsluna á því að ítreka fyrri gagnrýni sína á kynjafræðikennslu í framhaldsskólum og segir hana í mörgum tilvikum ekki uppfylla skilyrði hlutleysis sem ætti að vera grundvallaratriði í menntun: „Ég man bara eftir því þegar ég var að segja á Alþingi að kynjafræði væri mjög rótæk vinstri vók pólitík og svo kemur þetta: Steini á launum hjá ríkinu að tala um mig í einhverri kennslustofu þar sem nemendur hafa ekki einu sinni val.“
Snorri segir sig þó ekki taka árásir Þorsteins persónulega: „Ég get lifað vel með því. En þetta staðfestir bara… allt sem ég hef verið að segja um kynjafræði í skólum.“