Söguleg stund í sjónvarpinu: Allir hétu Einar

Hið ótrúlega gerðist í fréttum RÚV á laugardag: Allir fréttamennirnir í settinu hétu Einar. Einar Örn Jónsson flutti fréttir af íþróttum, Einar Magnús Einarsson fluttir fréttir af veðri og á milli þeirra sat Einar Þorsteinsson og sagði almennar fréttir.

Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands bera 2.500 nafnið Einar sem 1. eiginnafn. 0,12% af þeim voru í settinu á RÚV á laugardag.

Myndband af þessu ótrúlega augnabliki hefur verið sett á netið.

Auglýsing

læk

Instagram