Sonur varð vitni að lífshættulegri hnífaárás: Árásarmaður í gæsluvarðhaldi til 27. ágúst

RÚV greinir frá því að gæsluvarðhald hafi verið framlengt yfir manni sem grunaður er um að hafa ráðist með hnífi á ókunnugan mann í Reykjanesbæ þann 20. júní síðastliðinn. Litlu mátti muna að árásin færi með líf fórnarlambsins, en hann þurfti lífsbjargandi meðferð eftir að hafa verið fluttur á sjúkrahús. Árásin átti sér stað fyrir utan heimili brotaþola og var sonur hans vitni að atvikinu.

Samkvæmt úrskurði Landsréttar veittist árásarmaðurinn að manninum með hnífi á meðan eiginkona brotaþola hringdi í lögregluna. Hún hafði áður séð árásarmanninn láta öllum illum látum og berja á hurð bílskúrs með skóflu. Þegar hún sneri aftur til dyranna sá hún eiginmann sinn alblóðugan.

Auglýsing

Maðurinn hlaut alvarlega áverka á hendi, hnakka og baki og blæddi mikið. Hann var fluttur á gjörgæsludeild og svifi um tíma milli lífs og dauða.

Árásarmaðurinn, sem var handtekinn í Garðabæ eftir miðnætti sama kvöld, var í annarlegu ástandi og neitaði að kannast við árásina í fyrstu skýrslutöku. Síðar hélt hann því fram að fjórir menn hefðu ráðist á sig, en sagðist muna eftir að kona hefði beðið hann að fara. Hann viðurkenndi þó að þekkja hnífinn sem hann er talinn hafa beitt, þegar lögregla sýndi honum ljósmynd.

Í greinargerð lögreglu kemur fram að framburður mannsins sé samhengislaus og að hann virðist ekki í tengslum við raunveruleikann. Maðurinn hefur að sögn lögreglu langa brotasögu og glímir við stjórnlausa fíkniefnaneyslu og alvarlegt andlegt ástand. Hann er sagður skráður sakborningur í 67 málum hjá lögreglu.

Meðal þeirra brota sem hann er grunaður um eru að hafa stappað í andlit manns á skemmtistað í Reykjavík, tekið þátt í árás í íbúð með öðrum og hótað að drepa alla sem þar voru. Gæsluvarðhald hans var framlengt til 27. ágúst.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing