Orkulúr Hauks Viðars Alfreðssonar hefur náð ótrúlegri útbreiðslu. Haukur Viðar var á tímabili í fyrsta sæti á samfélagsmiðlinum Reddit og búið er að skoða myndirnar hátt í 700 þúsund sinnum þegar þetta er skrifað.
Sjá einnig: Orkulúr dregur dilk á eftir sér
Nútíminn sagði í gær frá orkulúr Hauks Viðars, sem starfar á auglýsingastofunni Brandenburg. Vinnufélagar hans tóku mynd af honum þegar hann fékk sér stuttan hádegisblund og notuðu svo Photoshop til að setja hann í ýmsar sprenghlægilegar aðstæður.
Brynjar Smári Alfreðsson, yngri bróðir Hauks, dreifði tengli á myndirnar á Reddit, einni mest sóttu vefsíðu heims og viðbrögðin stóðu ekki á sér.
Orkulúr Hauks náði á tímabili fyrsta sætinu á Reddit yfir vinsælasta efnið og fjörugar umræður hafa skapast um myndirnar með hátt í 500 ummælum.