Bygging er hafin í Víetnam á því sem á að verða stærsti fótboltavöllur heims. Leikvangurinn, sem mun rúma allt að 135 þúsund áhorfendur, rís í Hanoi og er hluti af gríðarstóru uppbyggingarverkefni sem ber heitið Olympic Sports City. DailyMail greinir frá málinu.
Heildarkostnaður verkefnisins er áætlaður um 28 milljarðar punda, eða um 4.800 milljarðar íslenskra króna. Leikvangurinn verður miðpunktur svæðis sem á einnig að hýsa íbúðabyggð, samgöngukerfi og fleiri íþróttamannvirki.
Hönnun vallarins byggir á Dong Son-bronstrommunni, einu þekktasta tákni fornrar víetnamskrar menningar. Markmiðið er að tengja saman hefð og nútímalega byggingarlist og skapa kennileiti í höfuðborg landsins.
Fer fram úr stærstu leikvöngum heims
Samkvæmt áætlunum mun Trong Dong Stadium verða stærsti fótboltavöllur heims að sætafjölda. Hann mun fara fram úr Rungrado 1. maí-leikvanginum í Norður-Kóreu og einnig Hassan II-leikvanginum í Marokkó, sem er í byggingu fyrir HM 2030.
Völlurinn á að hýsa stórar íþrótta- og menningarviðburði og er sagður geta lagt grunn að því að Víetnam geti tekið að sér alþjóðlega stórviðburði á borð við heimsmeistaramót og Ólympíuleika.
Gert er ráð fyrir að leikvangurinn verði fullbúinn árið 2028. Allt Olympic Sports City-verkefnið á hins vegar að ljúka árið 2035.