Frá og með deginum í dag taka gildi tímamótalög sem umbylta örorku- og endurhæfingarkerfinu. Breytingarnar snerta hátt í 30.000 Íslendinga og fela í sér einfaldara kerfi, hærri greiðslur og aukinn sveigjanleika.
Í stað þess að einblína á það sem fólk getur ekki, er nú horft til þess sem það getur. Nýja kerfið gerir fólki auðveldara að taka þátt á vinnumarkaði, styrkir endurhæfingu og minnkar líkur á að einstaklingar falli á milli kerfa.
95% fá hærri greiðslur
Samkvæmt Tryggingastofnun fá um 95% örorkulífeyrisþega hærri greiðslur en áður. Þeir sem lækka eru nær einvörðungu með háar lífeyrissjóðstekjur. Tryggingastofnun greiddi í dag um 1,2 milljörðum króna meira út til lífeyrisþega en um síðustu mánaðamót.
„Manneskjulegra og sanngjarnara“
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir breytingarnar marka tímamót:
„Nýtt kerfi er betra, manneskjulegra og sanngjarnara. Aukningin til öryrkja nemur 18 milljörðum króna á ári – mesta kjarabót sem þessi hópur hefur fengið í áratugi.“
Huld Magnúsdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar, kallar þetta „stórt skref í átt að nútímalegra kerfi“ og Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir að nýju reglurnar opni dyr sem áður hafi staðið lokuðum.
Helstu nýmæli
-
Samþætt sérfræðimat: Horfið frá gamla læknisfræðilega örorkumatinu – nú er horft heildrænt á heilsu og færni einstaklingsins.
-
Samhæfingarteymi: Tryggja samfellu í þjónustu fyrir þá sem þurfa aðstoð frá fleiri en einum aðila.
-
Hlutaörorkulífeyrir: Fyrir þá sem geta unnið hlutastarf, með hærra frítekjumark en áður.
-
Virknistyrkur: Veittur í allt að 24 mánuði fyrir þá sem eru í atvinnuleit með aðstoð Vinnumálastofnunar.
-
Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur: Tryggja afkomu fólks á meðan það bíður eða gengst undir endurhæfingu.
Breytingar í þágu fólksins
Forstjóri VIRK, Vigdís Jónsdóttir, bendir á að nýjar greiðslur tryggi afkomu fólks á erfiðum tímum. Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að nýja kerfið taki af ótta fólks við að detta á milli kerfa: „Nú myndast net utan um einstaklinga sem þurfa á stuðningi að halda.“