Steinar fer óhefðbundna leið í nýjum smelli

Tónlistarmaðurinn Steinar hefur sent frá sér lagið Rhoads 路. Myndbandið við lagið má sjá hér fyrir neðan.

Lagið er ekki heðfbundið popplag og það er óhætt að segja að Steinar fari óhefðbundna leið. Steinar samdi lagið sjálfur en upptökustjórateymið Redd Lights stýrði upptökum.

Lagið Up með Steinari kom út árið 2013 og naut talsverðra vinsælda. Hann sendi í kjölfarið frá sér plötuna Beginning en hefur látið lítið fyrir sér fara undanfarið.

Auglýsing

læk

Instagram