Stöð 2 blandar saman Popppunkti og Útsvari: Björn Jörundur stýrir Poppsvari

Spurninga- og skemmtiþátturinn Poppsvar hefur göngu sína á Stöð 2 í sumar. Tónlistarmaðurinn Björn Jörundur verður spyrill og landsþekkt tónlistarfólk frá völdum bæjarfélögum keppir í tónlistartengdum spurningum og þrautum.

Þátturinn verður því einskonar blanda af spurningaþáttunum vinsælu Útsvari og Popppunkti. Heimildir Nútímans herma að liðin verði átta og að þrír verði í hverju liði.

Auglýsing

Erfitt hefur reynst að komast að því hverjir etja kappi en samkvæmt heimildum Nútímans sendir Kópavogur gríðarlega sterkt lið til leiks sem mun innihalda kanónurnar Sölku Sól og Dr. Gunna. Þá má búast við sterkum liðum frá Selfossi, Akureyri, Reykjanesbæ og að sjálfsögðu Reykjavík.

Flest er enn á huldu varðandi þættina en um útsláttarkeppni er að ræða og eitt lið stendur uppi sem sigurvegari.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing