today-is-a-good-day

Strætó grillar ungan mann sem skildi eftir athugasemd um gullvagninn: „Hann er ekki úr alvöru gulli“

Strætó kynnti einstaklega glæsilegan vagn á Facebook-síðu sinni með orðunum: „Við sendum gullvagnin að sækja þig“.

Vagninn vakti skiljanlega mikla athygli og þegar þetta er skrifað hafa fleiri en þúsund manns líkað við myndina af honum á Facebook.

Fólk hefur líka verið duglegt við að tjá sig um vagninn sem er sagður töff, krydd í tilveruna og æðislegur. Einn spyr hvort það sé diskókúla og bar um borð í vagninum og annar veltir fyrir sér í hvernig búningi bílstjórinn sem ekur vagninum klæðist.

En það voru ekki allir jafn sáttir. Sumir setja þetta í samhengi við verðlagninguna en annar setti gyllta vagninn í samhengi við sóun.

Og fékk svar frá Strætó.

Búmm!

????????????

Hér má sjá umræðuna skemmtilegu

Auglýsing

læk

Instagram