Strigakjaftur til landsins: Doug Stanhope með uppistand á Reykjavík Comedy Festival

Bandaríski uppistandarinn, leikarinn og rithöfundurinn Doug Stanhope kemur fram á uppistandi á vegum Reykjavík Comedy Festival 30. október í Háskólabíói.

Í tilkynningu frá Senu kemur fram að uppistand hans sé mjög fjölbreytt og fjalli um „allt frá lífsreynslusögum um grafískar perversjónir til ofsafenginnar samfélagsrýni“.

Doug er óheflaður, með sterkar skoðanir, grimmilega hreinskilinn, hömlulaus og alls ekki allra. Hann hóf ferilinn í Las Vegas þar sem hann sagði dónabrandara til að fá fría drykki. Síðan hefur svo sem ekki mikið breyst, nema kannski hárið.

Auglýsing

Doug hefur komið víða við. Hann sá um The Man Show og Girls Gone Wild á Comedy Central og hefur komið fram í þætti Howard Stern, Late Friday á NBC, Spy TV og Floor Show Live á BBC.

Tvisvar hefur hann hlotið titilinn „Besti uppistandari ársins“ hjá Time Out í New York.

„Hann hefur jafnframt komið fram á ótal uppistandshátíðum um allan heim, þar á meðal Montreal Just For Laughs, Aspen US Comedy Arts, Chicago Comedy Festival og Edinburgh Festival Fringe Scotland,“ segir í tilkynningunni.

„Hann hefur einnig verið valinn einn af tíu efnilegustu grínistum heims af tímaritunum Variety og Hollywood Reporter.“

Miðasala hefst 3. september á Tix.is. Einnig hefur verið tilkynnt að grínistarnir Dylan Moran og Daniel Sloss koma fram á Reykjavík Comedy Festival.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing