Tónlistarhátíðin Secret Solstice hófst í gær og stemningin er góð. Hátíðin stendur alla helgina í Laugardalnum og kemur fjöldi þekktra tónlistarmanna fram.
Á meðal þeirra sem stigu á svið í kvöld voru bandaríska söngkonan Kelis ásamt Gus Gus, Ensími og Retro Stefson. Ýmislegt gekk á eins og gefur að skilja.
Bandaríska söngkonan Kelis kom fram og fékk sér svo hamborgara hjá Simma og Jóa í Fabrikkubílnum, sem er á svæðinu. Hún virðist ekki hafa fengið sér mjólkurhristing.
Hún stóðst þó ekki alveg væntingar allra.
Að málum málana – Vonbrigði kvöldsins – fölsk Kelis að gaula lög eftir alla aðra en sjálfa sig #bitraedruolettakonan #secretsolstice
— Sigga Jódís (@siggajodis) June 20, 2015
Hversu glatað var þetta Kelis dæmi? #SecretSolstice #vörusvik
— Davíð Eldur (@davideldur) June 20, 2015
Rafmagnið fór af hljóðkerfinu í miðju lagi þegar Gusgus var á sviðinu. Söngvarinn Daníel Ágúst tæklaði málið af fagmennsku og hélt uppi stemningunni þangað til allt fór í gang á ný.
„Þetta gerist,“ sagði hann og byrjaði að syngja á ný. Dansþyrstir gestirnir létu þetta stutta hlé ekki stöðva sig og byrjuðu að stíga sporin á ný.
Fréttir bárust af einum íbúa í Laugardal sem kvartaði undan hávaða. Bragi Valdimar afgreiddi hann.
Ég hata þegar það eru ókunnugar rapphljómsveitir í bakgarðinum mínum þegar ég er að reyna að sofna fyrir framan RÚV. #SecretSolstice
— Bragi Valdimar (@BragiValdimar) June 19, 2015