today-is-a-good-day

Sunna er svona tilbúin fyrir fyrsta atvinnubardagann sinn í Bandaríkjunum

Bardagakonan Sunna Davíðsdóttir mætir Ashley Greenway í Kansas City í Bandaríkjunum á morgun. Þetta er fyrsti atvinnubardagi Sunnu en hún er fyrsta íslenska konan sem gerist atvinnumaður í MMA.

Sjá einnig: Sjáðu brot úr heimildarmynd um Sunnu: „Ég elska að berjast — það gefur mér tilgang“

Bardagaklúbburinn Mjölnir, þar sem Sunna æfir, birti í dag þessa mynd af Sunnu sem sýnir hana rétt áður en hún steig á vigtina fyrir bardagann. Það leikur enginn vafi á því að Sunna er tilbúin fyrir bardagann.

Sunna gekk til liðs við Invicta Fighting Championships, sem er stórt bardagasamband í Bandaríkjunum, í apríl síðastliðnum. Hún varð þar með atvinnumaður í MMA, blönduðum bardagalistum, fyrst íslenskra kvenna.

Auglýsing

læk

Instagram