Svanhildur Hólm, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar , fjármála- og efnahagsráðherra, vann internetið með þessi tísti sínu um frétt dagsins.
Veit einhver um gott netöryggisnámskeið? Er að spyrja fyrir vin.
— Svanhildur Hólm (@svanhildurholm) August 31, 2015
Húmor er stundum eina svarið.
Þóra Margrét Baldvinsdóttir, eiginkona Bjarna, velti snjóbolta niður internethæðina í dag þegar hún sagði frá því á Facebook-síðu sinni að þau hjón hafi skráð sig fyrir forvitnissakir á vefinn umdeilda Ashley Madison.
Vefurinn Ashley Madison leiðir saman gift fólk og fólk í samböndum sem hefur áhuga á að halda fram hjá maka sínum. Vefurinn komst í heimsfréttirnar á dögunum þegar tölvuþrjótar réðust á vefinn og stálu þaðan upplýsingum um 37 milljónir notendur vefsins.
Sjá einnig: Hugleikur myndskreytir frétt dagsins
Gamalt netfang Bjarna frá því hann var stjórnarformaður N1 er að finna í gögnunum.
Svanhildur Hólm var ekki sú eina sem sló á létta strengi á Twitter. Málið var mikið rætt og Nútíminn tók saman nokkur tíst sem vöktu meiri athygli en önnur.
Skrambinn. Við sem vorum næstum búin að ná heilum sólarhring í að hafa athyglina á flóttamönnunum. #icehot1
— Bragi Valdimar (@BragiValdimar) August 31, 2015
icehot1 verður það sem ég ber á magavöðvabólguna mína þegar ég mun hætta að hlæja í febrúar #icehot1 #bjarnimadison
— María Hjarðar (@mariahjardar) August 31, 2015
Áhyggjuefni: #Icehot1 ber núna ábyrgð á öruggri rafrænni auðkenningu í stjórnsýslunni. Skráði sig á kynlífshjálparsíðu með vinnunetfangi.
— Andrés Ingi (@andresingi) August 31, 2015
Hvað eru allir að tala um? Búinn að marg-refresha mbl.is og sé ekkert um þetta. #icehot1 #bjarnimadison
— Bobby Breiðholt (@Breidholt) August 31, 2015
Sumir misstu samt af lestinni…
ohh var busy að laga svolítið í vinnunni og nú er búið að segja alla bestu #icehot1 brandarana
— Katrín Atladóttir (@katrinat) August 31, 2015