today-is-a-good-day

Svar Valtýs við tísti Ryan Reynolds mölbrýtur internetið: „Ég þekki þessa tilfinningu“

Bandaríski stórleikarinn Ryan Reynolds birti í gær skemmtilega mynd á Twitter ásamt félögum sínum þeim Hugh Jackman og Jake Gyllenhaal. Skömmu síðar fékk hann svar frá Valtý Valtýssyni, hönnuði sem hefur hreinlega slegið í gegn. Sjáðu samskipti þeirra félaga hér að neðan.

Færsla Ryan Reynolds vakti mikla lukku hjá þeim rúmlega 12 milljónum manna sem fylgja kappanum en á myndinni sýnir hann hvernig hann var blekktur til að mæta í jólapeysu.

Valtýr þekkir greinilega raunir Ryans en í svarinu segist hann finna til með leikaranum. „Ég þekki þessa tilfinningu,“ skrifar Valtýr með tístinu.

Auglýsing

læk

Instagram