Pólska svartdauðarokkhljómsveitin Behemoth kemur fram á Eistnaflugi á Neskaupstað næsta sumar.
Í tilkynningu frá Eistnaflugi kemur fram að hljómsveitin sé fyrir löngu orðin ódauðleg:
Sveitin er fyrir löngu orðin ódauðleg, stofnuð 1991 í Gdańsk og hefur aldrei verið stærri, þéttari og ofsalegri en nú. Nýjasta afurð þeirra, The Satanist, þykir með því allra besta sem þeir hafa gefið frá sér og tónleikaumfjallanir hafa verið í rökréttu framhaldi af því.
Eistnaflug verður risavaxin á næsta ári en hátíðin er löngu búin að stimpla sig inn sem stærsta þungarokkhátíð landsins. Á meðal annarra erlendra nafna á hátíðinni á næsta ári eru Godflesh, gríska gotamálmssveitin Rotting Christ og sænska sveitin In Solitude en platan þeirra Sister var kosin fjórða besta þungarokkplatan af Rolling Stone í fyrra.
Þá hafa Skálmöld, Brain Police, Dimma og The Vintage Caravan boðað komu sína.
Við leyfum hér einum slagara með Behemoth að fylgja með: