Tæplega tvær milljónir skoða fullkomið vonleysi Akureyrings í H&M

Hreiðar Kristinn Hreiðarsson, tvítugur Akureyringur, fékk sínar 15 mínútur af frægð í gær þegar mynd af honum að bíða eftir kærustunni í H&M skaut upp kollinum á Reddit.

Tæplega tvær milljónir hafa nú skoðað myndina sem þykir sýna fullkomið vonleysi hóps drengja að bíða eftir kærustunum sínum við mátunarklefana.

View post on imgur.com

Auglýsing

Myndin er tekin í H&M verslun í Manchester og Hreiðar Kristinn segir í samtali við Vísi að hann hafi búist smá við þessu. „Það voru þarna einhverjir tíu strákar alls sem voru að bíða þannig að myndefnið var alveg til staðar,“ segir hann.

Ég held að hver einasti strákur í heiminum kannist við þetta að þurfa bíða í heila eilífð meðan kærastan mátar föt.

Fjörugar umræður hafa skapast á Reddit um myndina. Einn bendir á að það þurfi að koma fyrir sófum og hleðslutækjum fyrir fólk sem bíður eftir mökum sínum í verslunum.

Aðrir benda á lausnir sem finna má í öðrum verslunum, t.d. bar í Nordstrom í Chicago. Þá bendir einn á að verslunarmiðstöð í New Jersey hafi opnað svokallaðan „mannhelli“ með sjónvörpum og bjórdælum fyrir nokkrum árum.

Hagkaup opnaði svipað herbergi fyrir nokkrum árum sem fékk blendin viðbrögð.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing