Gísli Pálmi blótaði átta sinnum á 15 sekúndum í viðtali Ólafs Páls Gunnarssonar í Rokklandi á Rás 2 á dögunum. Nútíminn greindi frá því í gær að blótsyrðin hafi verið sjö en talningin klikkaði, eitt shit gleymdist.
Sjá einnig: Gísli Pálmi blótaði sjö sinnum á 15 sekúndum í viðtali á RÚV
Nútíminn fékk fjölmargar ábendingar um að talningin hafi verið röng. Við sáum því ekki annan kost í stöðunni en að endurstilla Fu** sh** teljarann og birtum leiðrétta útgáfu hér fyrir neðan.