Þegar aðrir syrgja Charlie Kirk: Guðmundur Andri talar um „hatursáróður“

Guðmundur Andri Thorsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar og rithöfundur, skrifar á Facebook um morðið á bandaríska áhrifamanninum Charlie Kirk. Þar er hann ekki að syrgja manninn sem var skotinn til bana, heldur að vara við því að „hatursáróður“ Kirks muni nú fá aukið vægi.

„Hatursáróður hans fær nú aukið lögmæti og vægi,“ skrifar Guðmundur Andri og kallar Kirk „talsmann misréttis, rasisma og kúgunar.“ Hann segir jafnframt að morðið hafi verið fagmannlega unnið og varar við því að „fasísk öfl“ muni nýta það til að herða tökin á frjálslyndum og mannréttindasinnum.

Auglýsing

Með þessu stillir Guðmundur Andri sér skýrt upp á móti þeim sem líta á morðið sem árás á málfrelsi og lýðræðisleg gildi. Þar sem margir í Bandaríkjunum syrgja áhrifamann sem þeir telja hafa verið sterka rödd íhaldsmanna, leggur íslenskur fyrrverandi þingmaður áherslu á að minnast hans fyrst og fremst sem andstæðings mannréttinda.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing