Youtube-rásin Chipmunks Love Eurovision sérhæfir sig, eins og nafnið gefur til kynna, í að dæla inn íkornaútgáfum af Eurovision-lögum.
Framlag Íslands í ár komst kannski ekki áfram en við fáum engu að síður að vera með í þessu gríni. Hér fyrir neðan má heyra íkornana syngja Unbroken sem María Ólafs gerði fyrir Íslands hönd í Austurríki á dögunum.
Þetta er stórkostlegt og furðulega ávanabindandi. Hlustið hér fyrir neðan.