Magnús Eiríksson fagnaði sjötugsafmæli sínu 25. ágúst og af því tilefni var gefin út vegleg þreföld ferilsplata með 60 af hans vinsælustu lögum.
Lög eins og Reyndu aftur, Draumaprinsinn, Gleðibankinn, Ó þú, Kóngur einn dag en Magnús er eitt fremsta tónskáld landsins.
Árvökull lesandi Nútímans, Atli Viðar, tók þessa mynd af plötunni og sýndi okkur. Myndin sýnir hvað góður prófarkalestur er mikilvægur enda líður tíminn hratt — hann „líuðr“ekki.
Við skulum bara vona að platan seljist upp sem fyrst og að næsta upplag verði lagað.
Í tilefni af afmælinu Magnúsar verður einnig blásið til afmælistónleika í Hörpu 19. september „þar sem valin lög úr koma til með að hljóma í flutningi valinkunnra tónlistarmanna,“ eins og segir á vef Senu.