Leikarinn Tómas Lemarquis hefur nú nýlokið tökum á myndinni X-Men: Apocalypse. Tökurnar fóru fram í Montreal og fer Tómas með hlutverk Caliban. Þetta kemur fram á mbl.is.
Fyrir þau sem þekkja ekki X-Men þá greinir mbl.is frá því að Caliban sé svokallað stökkbrigði sem hefur þann hæfileika að geta skynjað önnur stökkbrigði og numið staðsetningu þeirra. Þá getur hann einnig beislað tilfinningar annarra til að auka eigin styrk.
Þetta er stærsta verkefni Tómasar en í samtali við mbl.is segist hann tilhugsunina um frekari verkefni í Hollywood spennand.
Það var alveg æðislegt að vinna með leikstjóranum Bryan Singer.
X-Men: Apocalypse verður frumsýnd næsta vor og á meðal þeirrs sem fara með stór hlutverk eru Olivia Munn, Jennifer Lawrence, Sophie Turner, Michael Fassbender og Hugh Jackman.