Þóra Arnórsdóttir hefur verið ráðin ritstjóri Kastljóss. Hún tekur við því starfi af Sigmari Guðmundssyni sem að eigin ósk fer í önnur störf hjá RÚV. Þetta kemur fram á vef RÚV.
Sjá einnig: Sigmar Guðmunds hættir sem ritstjóri Kastljóssins
Þóra hefur leyst Sigmar af sem ritstjóri undanfarna mánuði. Á vef RÚV kemur fram að hún eigi að baki langan og farsælan feril í fjölmiðlum og hefur um árabil starfað sem frétta- og dagskrárgerðarmaður í Kastljósi auk þess sem hún var aðstoðarritstjóri þáttarins síðustu ár.
Loks kemur fram að stefnan sé að Kastljós eflist næsta vetur. Þátturinn verður á dagskrá að nýju eftir sumarfrí mánudaginn 24.ágúst.