Þórarinn Hjartarson, stjórnandi hlaðvarpsins Ein pæling, svarar harðlega þeirri gagnrýni sem hann hefur fengið eftir að í ljós kom að vopn sem fimm ungir menn voru með á Akureyri um verslunarmannahelgina voru leikfangabyssur. Hann segir það ekki breyta kjarna málsins að um eftirlíkingar hafi verið að ræða enda hafi þeim, samkvæmt fyrstu upplýsingum um málið, verið otað að fólki.
Þórarinn Hjartarson gerði málið á Akureyri að umtalsefni í nýjasta þætti Einnar pælingar og fór þar yfir viðbrögðin sem urðu eftir að fimm ungir karlmenn voru handteknir í umfangsmikilli lögregluaðgerð.
Sérsveit ríkislögreglustjóra tók þátt í aðgerðinni eftir að tilkynningar bárust um menn með það sem talið var vera skotvopn. Fyrstu fréttir málsins voru á þá leið að vopnum hefði verið otað að fólki, en síðar kom í ljós að um leikfangabyssur eða eftirlíkingar af skotvopnum var að ræða.
Sú staðreynd varð í kjölfarið stór hluti umræðunnar um málið og voru Þórarinn og fleiri gagnrýndir fyrir hörð viðbrögð við fyrstu fréttum.
Sjónarvottur í skotvopnamáli segir alla fimm handteknu hafa verið af erlendum uppruna
„Mér er alveg sama“
Þórarinn hafnar því hins vegar alfarið að sú niðurstaða að um leikfangabyssur hafi verið að ræða breyti meginatriði málsins.
„Mér er alveg sama, leikfangabyssur eða ekki, ef það er verið að ota þessu að fólki þegar það er að ganga um götur Akureyrar á næststærstu útihátíð landsins þá hefur það bara eitthvað að segja,“ segir Þórarinn.
Hann segir umræðuna að sínu mati hafa farið út af sporinu þegar megináherslan færðist yfir á það að vopnin hefðu ekki verið raunveruleg.
Þórarinn tekur dæmi af því hvernig tekið yrði á sambærilegri hegðun ef Íslendingur væri staddur erlendis. Hann spyr hversu lengi hann gæti búist við að fá að vera áfram í öðru landi ef hann gengi um fjölmenna hátíð og léti líta út fyrir að hann væri að miða vopni að fólki.
„Væri það haldbær rök fyrir því að ég ætti ekki að þurfa að þola afskipti lögreglu að ég hafi ekki verið með neitt í vasanum? Nei, þetta er ógnandi tilburður,“ segir hann.
Segir málið stærra en leikfangabyssurnar
Þórarinn tengir málið við stærri umræðu um útlendingamál og það sem hann telur of mikla tilhneigingu til þess að gera lítið úr óæskilegri eða ógnandi hegðun þegar einstaklingar af erlendum uppruna eiga í hlut.
Hann vísar sérstaklega til þróunar í Svíþjóð, Þýskalandi og Bretlandi og segir Íslendinga eiga á hættu að endurtaka mistök sem að hans mati hafi verið gerð þar.
„Við erum algjörlega búin að missa hausinn í þessu,“ segir Þórarinn.
Hann segir sér sérstaklega misboðið þegar málið sé afgreitt með þeim rökum að einungis hafi verið um leikföng að ræða.
„Það að þetta voru leikfangabyssur er eitthvað sem mér er drullu sama um.“
Að hans mati skipti fyrst og fremst máli hvernig hlutirnir voru notaðir og hvaða áhrif hegðunin hafði á almenning og viðbrögð lögreglu.
„Við ætlum að stinga hausnum í sandinn“
Þórarinn gengur lengra og segir viðbrögðin við málinu birtingarmynd þess sem hann kallar „sjálfskaðandi samkennd“.
„Við ætlum að gera ráð fyrir því að þessir hlutir muni bara koma til með að blessast sjálfir. Við ætlum að stinga hausnum í sandinn þegar menn eru að þykjast vera með árásarvopn á næststærstu útihátíð á Íslandi og ota þeim að gestum gangandi,“ segir hann.
Hann telur slíka nálgun ekki draga úr andúð í garð útlendinga heldur geti hún þvert á móti ýtt undir hana.
Þórarinn segir að ef fólk upplifi að alvarleg eða ógnandi hegðun sé afsökuð eða gerð lítilvæg af pólitískum ástæðum muni það skapa jarðveg fyrir mun harðari stjórnmálaöfl.
„Já, vissulega verður meira bakslag og já, vissulega verður meiri andstaða. En af hverju haldið þið að það sé?“
Hafnar samanburði við barnaleiki
Þórarinn gagnrýnir einnig samanburð sem hann segist hafa séð á samfélagsmiðlum við börn sem leika sér með leikfangabyssur.
Hann segir þar grundvallarmun á.
„Þetta voru 17 til 22 ára karlmenn í bíl“ segir Þórarinn og bendir á að um hafi verið að ræða hluti sem litu út eins og árásarvopn og hafi, samkvæmt þeim upplýsingum sem lágu fyrir um atvikið, verið otað að fólki.
Að hans mati sé því fráleitt að bera atvikið saman við börn í hefðbundnum byssuleik.
Þórarinn segir að verslunarmannahelgin og hátíðarhöld á Akureyri hafi sérstakan sess í íslenskri menningu og að ógnandi háttsemi við slíkar aðstæður hafi óhjákvæmilega áhrif á viðhorf almennings.
„Ekki dirfast að segja mér að ég sé eitthvað að vekja andúð. Andúðin kemur fyrst og fremst gagnvart þessari bullhegðun,“ segir Þórarinn og lýkur umræðunni á því að undirstrika að uppljóstrunin um leikfangabyssurnar hafi ekki breytt afstöðu hans til málsins.
Ein Pæling 7. ágúst: Leikfangabyssur og meðvirkni
Nýtt á https://t.co/ObsewgLN62 pic.twitter.com/IBIOUEbUni— Thorarinn Hjartarson (@TotiHjartar) August 7, 2026