Þorsteinn í Plain Vanilla tekinn í gegn í beinni á Fox: „Hvað er ég að gera hérna?“

Ný útgáfa af spurningaappinu Quiz Up var kynnt í síðustu viku. Nýja útgáfan leggur aukna áherslu á samfélagshluta leiksins og hjálpar notendum með svipuð áhugamál að tengjast.

Þorsteinn B. Friðriksson, framkvæmdastjóri Plain Vanilla, hefur kynnt leikinn víða og var í viðtali á viðskiptastöð Fox News í Bandaríkjunum í síðustu viku.

Auglýsing

Stjórnandi þáttarins kom Þorsteini á óvart þegar hann spurði hann um höfuðborgir þriggja landa. Þorsteinn stóð á gati sagði á Facebook-síðu sinni að það væri kannski ekki skrýtið, viðtalið var tekið daginn eftir útgáfu á uppfærslunni á Quiz Up og hann var skiljanlega ryðgaður.

Myndbandið hér fyrir neðan er kostuglegt og Þorsteinn spyr meðal annars: „Hvað er ég að gera hérna?“ á meðan spyrillinn þjarmar að honum. Í góðu gríni þó.

https://youtu.be/yqSARorwxxQ

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing