Þóttist vera sofandi í bílnum sínum þegar lögreglan hafði afskipti af honum í Reykjavík

Það var mikið að gera hjá lögreglunni í nótt og fangageymslur á Hverfisgötu eru fullar. Tilkynnt var  um mann að selja fíkniefni í hverfinu. Þegar lögregla kom á vettvang þóttist maðurinn vera sofandi í bifreið sinni.  Maðurinn var ósáttur við að lögregla væri að gramsa í hans einkamálum en var handtekinn og vistaður í þágu rannsóknar málsins.

Annar maður var stöðvaður við akstur, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna en auk þess reyndist hann sviptur ökuréttindum.

Auglýsing

Kona var handtekin í miðbænum eftir að hringt hafði verið í lögregluna vegna óspekta hennar. Þegar lögregla kom á vettvang neitaði hún að segja til nafns og var ekki viðræðuhæf vegna ölvunar og var hún handtekin og flutt á lögreglustöð.

Tilkynnt um skólausan mann í miðbænum en sá var á ferðinni með ísexi. Maðurinn var mjög ölvaður en var þó mjög rólegur og var ekki að ógna neinum með exinni. Maðurinn handtekinn og fluttur á lögreglustöð til viðræðna.

Lögregla var kölluð út á höfuðborgarsvæðinu vegna ölvunar ungmenna en þegar lögregla kom á svæðið var eitt af ungmennunum með hafnaboltakylfu.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing