Lögreglan og sérsveitin réðust í gærkvöldi í umfangsmikla aðgerð í Hamraborg, þar sem bifhjólasamtökin Hells Angels héldu veislu. Þrír voru handteknir og húsnæði klúbbsins vaktað bæði frá jörðu og úr lofti með dróna.
Lögreglan: „Við fylgjumst með“
Davíð Finnbogason, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að aðgerðin hafi verið sett í gang eftir að upplýsingar bárust um samkvæmið.
„Við ræstum út nokkra bíla og fengum aðstoð sérsveitarinnar. Við viljum ganga úr skugga um að allt fari eðlilega fram,“ segir hann.
Gestum var ekki bannað að koma á staðinn en allir þurftu að sæta leit við innganginn. Lögreglan hafði verið á vettvangi frá því um níuleytið og áformaði að vera áfram fram á nótt.
Europol skilgreinir samtök á borð við Hells Angels og Bandidos sem skipulögð glæpasamtök.
Vítisenglar: „Þetta er bara vinahittingur“
Félagar úr Vítisenglum sem fréttastofa Sýnar ræddi við á vettvangi segja aðgerðir lögreglunnar vera úr hófi fram.
„Ímyndaðu þér peninginn sem fór í þetta – hann hefði getað farið í að laga holurnar í götunum,“ sagði einn þeirra.
Þeir segjast einungis hafa verið að halda fjölskyldu- og vinafögnuð. Samkvæmið hafi þó verið auglýst á ensku í þetta sinn, sem varð til þess að lögreglan fylgdist sérstaklega með.
Þrír teknir fastir
Samkvæmt Vítisenglum var meðal annars vinur þeirra handtekinn, þó hann hafi ekki ætlað sér að sækja veisluna. Hann hafi verið stöðvaður af lögreglu, beðinn um að sýna skilríki og síðan færður í hald þegar hann mundi ekki síðustu fjóra tölustafina í kennitölunni sinni.