Þúsundir aðdáenda slefa yfir Jökli í Kaleo á Instagram: „Eiginmaður framtíðarinnar“

Hljómsveitin Kaleo nýtur vaxandi vinsælda víða um heim þessa dagana og þá sérstaklega í Bandaríkjunum. Söngvarinn Jökull Júlíusson er sérstaklega vinsæll hjá aðdáendum hljómsveitarinnar og Instagram-aðgangurinn er til vitnis um það.

Jökull er vinsælt myndefni og eru myndir á borð við þessa skiljanlega vinsælar

View this post on Instagram

#Kaleo #OfficialKaleo

A post shared by KALEO (@officialkaleo) on

Þúsundir hafa líkað við þessa mynd og ummælin sem fylgja eru flest á einn veg. Jökli er hrósað fyrir líkamsburði sína og sumir aðdáendur eru hreinlega slefandi og ganga svo langt að fullyrða að þarna sé á ferðinni eiginmaður framtíðarinnar.

Kaleo kom fram á tónlistarhátíðinni Coachella á dögunum. Í umfjöllun Huffington Post, einnar stærstu fréttasíðu heims, kemur fram að Kaleo hafi slegið í gegn með frammistöðu sinni á hátíðinni.

Aðdáendurnir voru einnig hrifnir af þessari mynd

View this post on Instagram

#Kaleo #OfficialKaleo

A post shared by KALEO (@officialkaleo) on

Og þessari, sem sýnir Jökul leika listir sínar á Coachella-hátíðinni

View this post on Instagram

Killing time at @coachella #Kaleo #OfficialKaleo

A post shared by KALEO (@officialkaleo) on

Menn eru duglegir að æfa sig

View this post on Instagram

#Kaleo #OfficialKaleo

A post shared by KALEO (@officialkaleo) on

Og myndir á borð við þessa sækja einnig þúsundir læka

View this post on Instagram

#Kaleo #OfficialKaleo

A post shared by KALEO (@officialkaleo) on

Kaleo hefur notið mikillar velgengni undanfarið. Hljómsveitin var í þriðja sæti á alternative lista Billboard fyrir árið 2016 með lag sitt Way Down We Go. Þetta er besti árangur nýrrar rokksveitar síðan Götye gaf út lagið Somebody that I used to know árið 2012.

Lögin á listanum eru þau mest spiluðu á útvarpsstöðvum í Bandaríkjunum sem sérhæfa sig í rokktónlist en Billboard útnefndi Kaleo einnig sem bestu nýju rokkhljómsveit ársins.

Jökull sagði í viðtali við Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur í Ísþjóðinni á dögunum að hann ferðist um í sérrútu ásamt aðstoðarmanni sínum, umsjónarmanni tónleikaferðalagsins og sviðmanni. „Svo eru hinir strákarnir og hitt crewið í annarri rútu,“ sagði hann og bætti við að með hljómsveitinni telji hópurinn um tólf manns.

Það fer mjög vel um mig. Ég kann bara vel við mig eins og er. Tónleikastaðirnir eru mismunandi þegar maður er að spila og mér finnst voða kósí fyrir gigg að vera að slaka á hér

Jökull sýndi Ragnhildi Steinunni rútuna og komst hún meðal annars að því að hann sefur í sérstakri svítu aftast í rútinni en aðrir starfsmenn sofa í kojum framar í rútinni. Í svítunni er Jökull með stórt rúm, sturtu og klósett og hann er ánægður með aðstöðuna.

Rætt var við bílstjórann Arthur Roundy í þættinum og hafði hann ekkert nema góða hluti að segja um Jökul, eða JJ eins og hann kallaði hann. „Hann er frábær. Besti listamaður sem ég hef unnið með. Ég hef unnið með Justin Bieber, The Weekend, Guns n’ Roses, Keith Urban, Brad Paisly, nefndu það bara. Ég hef verið lengi í bransanum,“ sagði hann.

Arthur sagði Jökul vera hljóðlátan og hrósaði honum sérstaklega fyrir að taka til eftir sig. „Hann er eini listamaðurinn sem ég hef unnið með sem fer í sturtu eftir tónleika og beint í rúmið. Það er ekkert óhóf. Hann drekkur ekki eða djammar. Hann er mjög góður listamaður.“

Platan A/B með Kaleo kom út í júní í fyrra og fór toppinn á listum iTunes víða um heim og ofarlega á lista í Bandaríkjunum og Bretlandi.

Platan er gefin út af útgáfurisanum Atlantic en Sena sér um útgáfu plötunar hér heima. Platan fór á toppinn á lista iTunes í Kanada, Grikklandi, Írlandi, Lúxemborg, Nýja-Sjálandi, Ísrael, Líbanon og Sviss. Í annað sæti í Suður-Afríku og Rússlandi og í þriðja sæti í Bandaríkjunum og Bretlandi.

Þá komst platan á topp tíu í Ástralíu, Singapore, Indlandi, Tyrklandi og inn á lista í Austurríki, Danmörku, Frakklandi, Hollandi, Ítalíu og í Þýskalandi.

Auglýsing

læk

Instagram