Tilbúin Eðla komin í verslanir: Ostahúsið var á undan Steinda

Ostahúsið hefur sett salsadýfu á markað, svokallaða Eðlu. Eðla er blanda af rjómaosti, salsasósu og rifnum osti sem er hituð í ofni. Tortilla-flögum er svo dýft í Eðluna.

Sjá einnig: Sagan af uppruna Eðlunnar loksins afhjúpuð

Auglýsing

Grínistinn Steindi jr. hefur haldið Eðlunafninu á lofti á samfélagsmiðlum og sendir reglulega Snapchat af sér að borða sjóðandi heita Eðlu. Þá hefur hann birt myndir af Eðlum á Instagram ásamt því að ræða um Eðlur við notendur á Twitter.

Steindi íhugaði að markaðssetja Eðlu en hugmyndin kom upp í útvarpsþættinum Laugardagskaffinu á X977 í febrúar í fyrra. Ostahúsið var á undan honum.

Mynd af Eðlu er utan á dýfunni frá Ostahúsinu en Nútíminn hefur rannsakað uppruna þess að rétturinn er kallaður Eðla. Í febrúar greindi Bæjarblaðið Mosfellingur frá því að rétturinn hafi fengið nafnið árið 2001.

Vinkonurnar Vigdís Guðmundsdóttir, Eva Ósk Svendsen, Anna María Örnólfsdóttir og Telma Baldursdóttir hafa lengi verið saman í saumaklúbbi. Í viðtali við Mosfelling sögðu þær að ostadýfan hafi verið tíður réttur þegar þær hittast.

„Við höfðum oft talað um það að okkur vantaði nafn á saumaklúbbinn, svo eitt kvöldið 2002 þegar við hittumst kom það. Þann dag hafði Telma farið örlagaríka ferð í Europris og keypt sér hillu,“ sagði Eva Ósk í Mosfellingi og Telma tók við:

Þegar ég opnaði pakkninguna þá var dauð eðla í hillunni. Um kvöldið tók ég eðluna með í lokuðu boxi til að sýna stelpunum, og þar sem við höfðum verið að vandræðast með nafn á klúbbinn fannst okkur tilvalið að kalla okkur Eðlurnar.

Svo vildi til að Anna María var með ostadýfu í ofninum þetta örlagaríka kvöld og síðan þá hefur rétturinn aldrei verið kallaður annað en Eðlurétturinn eða Eðlan.

Nútíminn greindi frá því í desember að Eðlan væri að auka söluna á rjómaosti. Samkvæmt Aðalsteini Magnússyni, sölustjóra MS, jókst salan á rjómaosti um sjö prósent á árinu og heil 26 prósent frá árinu 2011.

„Við vorum einmitt búin að sjá þetta trend. Þetta var víst málið — sérstaklega núna í prófalestrinum,“ sagði Aðalsteinn í samtali við Nútímann.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing