„Tímasprengja undir Svartsengi“ – næsta eldgos getur komið án fyrirvara

Ísland stendur frammi fyrir yfirvofandi náttúruvá: Um 9 milljónir rúmmetra kviku hafa safnast saman undir Svartsengi, samkvæmt nýjustu hættumatsskýrslu Veðurstofunnar. Þegar þessi tala nálgast 11 milljónir – sem gæti gerst strax í lok september – aukast líkurnar á að nýtt gos brjótist út.

Veðurstofan segir í nýjustu skýrslu sinni: „Reikna þarf með nýju eldgosi en óvissa um mögulega tímasetningu á því er töluverð.“

Auglýsing

Viðvörunartími gæti verið örstuttur

Sérfræðingar minna á að viðvörun fyrir næsta atburð verði líklega stuttur. Í fyrri gosum hefur fyrirvarinn verið frá aðeins 20 mínútum upp í fjóra tíma. Það þýðir að ef kvikan brýst upp gætu íbúar og ferðamenn staðið frammi fyrir eldgosi nánast án þess að geta brugðist við.

Óvissa um hvar og hvenær

Þrátt fyrir að hættumatskortið haldist óbreytt að sinni er ljóst að kvikan heldur áfram að safnast. Veðurstofan bendir á að mörkin fyrir það hvenær atburður hefst séu breytileg: „Reynslan sýnir að mörkin á því hvenær atburður hefst eru breytileg á milli gosa.“

Hver er raunveruleg hættan?

Ef kvikan brýst út við Svartsengi gæti gosið haft áhrif á innviði, umferð og jafnvel mannslíf. Veðurstofan áréttar að gos geti hafist hvenær sem er, án skýrs fyrirvara.

Næstu dagar og vikur verða því taldir með hættulegustu tímabilum sem Reykjanesskagi hefur staðið frammi fyrir frá upphafi umbrotanna árið 2020.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing