Auglýsing

Tóku æfingu saman á settum degi og hann bar „óléttubumbu“ framan á sér

Hjónin Jóhanna Margrét Gísladóttir og Ólafur Sigurgeirsson eiga von á sínu fyrsta barni. Settur dagur var í vikunni og Ólafur var búinn að lofa Jóhönnu að þau myndu taka æfingu saman á settum degi, ef barnið væri ekki komið, þar sem hann myndi bera gervi óléttubumbu framan á sér.

Ólafur segir í samtali við Nútímann að æfingin hafi verið erfiðari en hann bjóst við og að hann hafi hreinlega sjaldan svitnað jafn mikið.

„Við vorum að pæla í þungum bolta fyrst en vestið var besta lausnin og var með 15 kílóa þyngingu. Það er fyrir utan nokkur samúðaróléttukíló sem ég er búinn að bæta á mig sjálfur,“ segir Ólafur laufléttur.

Þetta var eiginlega erfiðara en ég bjóst við. Ég var strax orðinn mjög bugaður í upphitun og ekkert alltof viss um að ég gæti klárað æfinguna.

Ólafur og Jóhanna fóru á paraæfingu í Crossfit Reykjavík.

„Við skiptumst á að gera æfingarnar sem voru samsetning af tvöföldu sippi, sem ég átti í miklum vandræðum með, clean og jerk, wallballs (kasta þungum bolta í þriggja metra hæð), burpees yfir stöng — sem konan smókaði mig í og framstig með þyngd yfir höfuð. Samtals í 28 mínútur,“ segir hann.

„Það er langt síðan ég hef svitnað svona mikið og ég var fljótur að henda vestinu af mér þegar tíminn kláraðist. Ég fann alveg hversu mikil áhrif þessi þyngd hafði á t.d. hnén og hásinarnar hjá mér og skil betur grindarverki konunnar sem hún hefur verið að glíma við síðustu vikurnar, enda mikið álag á líkamann.“

13383713_10210050812805776_2123424046_o

Ólafur leggur áherslu á að þarna hafi hann aðeins fengið að kynnast þyngdinni en ekki öllu hinu sem Jóhanna hefur verið að upplifa síðustu mánuðina.

„Ég ber mikla virðingu fyrir óléttum konum og því sem þær leggja á sig til að koma þessum kraftaverkum í heiminn. Konan mín hefur verið mjög dugleg að hreyfa sig síðustu mánuði þegar heilsan hefur leyft og er ég mjög stoltur af henni,“ segir hann og bætir við að þau hjónin séu mjög spennt að verða foreldrar.

„Við vonum að drengurinn láti ekki bíða lengi eftir sér.“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing