Tómasarnir þrír, LæknaTómas, TalningaTómas og TilfinningaTómas sátu saman fyrir á mynd sem vakti talsverða athygli á dögunum. Myndin var tekin fyrir HeForShe-herferð UN Women.
#læknatómas, #talningatómas, #tilfinningatómas og #ljóðatómas samankomnir. Þetta er söguleg stund. pic.twitter.com/hWDtwywK4A
— Tómas Howser (@TomasHowser) May 4, 2015
Nútíminn frumsýnir nú myndband með þeim félögum sem er hluti af sex örmyndböndum sem gerð voru í tilefni af HeForShe-herferðinni þar sem búið er að para saman ólíka einstaklinga í skemmtilegum aðstæðum.
Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.
Markmið herferðarinnar er að hvetja karlmenn til þátttöku í baráttunni fyrir kynjajafnrétti í heiminum. Myndbandið var tekið upp við Tjörnina á bekk Tómasar Guðmundssonar.
Tómas Guðbjartsson, best þekktur sem LæknaTómas, segir sérstaklega ánægjulegt að taka þátt í verkefninu og fá loksins að hitta hina Tómasana tvo.
Ég hafði vissulega fylgst með þeim í fjölmiðlum en við höfðum aldrei hist. Við höfðum margt að ræða, annað en tölfræði á Twitter.
Hér höfum við myndbandið. Nánari upplýsingar má finna á HeForShe.is.
Menn sem heita Tómas hafa vakið reglulega athygli undanfarin misseri. Allir hafa þeir fengið viðurnefni en þeir eru nú orðnir þrír: TalningarTómas, LæknaTómas og nú síðas TilfinningaTómas.
Lögmaðurinn Tómas Hrafn Sveinsson, formaður kjörstjórnar í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningunum í fyrra, fékk það erfiða hlutverk að svara fjölmiðlum þegar talning atkvæða dróst á langinn.
Hann fékk í kjölfarið viðurnefnið TalningarTómas og kassamerkið #TalningarTómas naut gríðarlegra vinsælda á Twitter.
Læknirinn Tómas Guðbjartsson sló í gegn þegar Kastljós birti upptöku úr aðgerð þar sem hann bjargaði lífi manns sem hafði verið stunginn í hjartað. Hann var í kjölfarið kallaður LæknaTómas og var víða valinn maður ársins.
Framhaldsskólaneminn Tómas Harðarson fer fyrri sterku liði Fjölbrautaskólans í Garðabæ í Gettu betur. Liðið er komið í úrslit og tilfinningahiti hans hefur vakið mikla athygli. Fólk er því byrjað að kalla hann TilfinningaTómas.
Hanna Eiríksdóttir, starfandi framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, segir að 8.500 karlmenn hafi skráð sig í alþjóðleglegu átaki HeForShe síðasta haust.
„Við viljum ná til þeirra sem og nýrra karlmanna og hvetja þá til þess að taka næsta skref og gerast mánaðarlegir styrktaraðilar,“ segir hún.
„Kynjajafnrétti er mannréttindamál sem snertir okkur öll, ekkert land hefur náð fullkomnu kynjajafnrétti og ef við höldum á sömu braut og sama hraða og við höfum gert þá mun kynjajafnrétti ekki nást fyrr en árið 2095. Það er óásættanlegt. Við verðum að vinna þetta í sameiningu. Þá munum við ná þessu helmingi fyrr.
Íslenskir karlmenn eru hvattir sérstaklega til þess að skrá sig sem mánaðarlegir styrktaraðilar á síðunni www.heforshe.is og hafa raunveruleg áhrif á líf milljónir kvenna og stúlkna í fátækustu löndum heims.
Herferðin stendur yfir dagana 11. – 26. Maí.