Í ár hefur sumarið í Benidorm ekki verið eins líflegt og vanalega. Bars og veitingastaðir í bænum segja frá dögum með lítið líf, sem þykir óvenjulegt á háannatíma. Á samfélagsmiðlum hafa birst myndbönd sem sýna tóma sólstóla, auðar götur og jafnvel lokaða bari í miðri ferðamannavertíð. Það er DailyMail sem greinir frá þessu.
Benidorm hefur í áratugi verið einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga, en á undanförnum árum hafa staðir á borð við Tenerife tekið við keflinu. Sama virðist eiga við hjá fleiri þjóðum, ef marka má umfjöllunina.

Skiptar skoðanir ferðamanna
Sumir ferðamenn telja að samdrátturinn stafi af hækkandi verðlagi og áralöngum mótmælum gegn fjöldaferðamennsku sem hafi hrakið gesti í burtu. Aðrir fullyrða hins vegar að Benidorm sé enn troðfullt og að myndirnar sem hafa vakið athygli gefi ekki rétta mynd af ástandinu.
Ferðaþjónustan sendir tvö skilaboð
Hagsmunasamtök veitinga- og gististaða í Benidorm segja veltu hafa aukist um 5% í júlí og ágúst miðað við sama tímabil í fyrra, einkum vegna hærri útgjalda ferðamanna og hækkandi verðskráa. Þau viðurkenna þó að það hafi verið óvenju rólegir dagar inn á milli.
Á meðan sumir staðbundnir aðilar hafa áhyggjur af minni gestafjölda, fagna aðrir þróuninni og telja að of margir ferðamenn hafi árum saman gert lífið í borginni erfiðara fyrir íbúa.
@yorkshirebargainhunter #benidorm #benidorm #tourism #nightlife ♬ original sound – yorkshirebargainhunter