Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður íhuga að bjóða hverjum einasta Grænlendingi greiðslu upp á 1 milljón Bandaríkjadala (um 125 milljónir króna) ef íbúar eyjarinnar kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslu að ganga til liðs við Bandaríkin. DailyMail greinir frá málinu.
Trump hefur að undanförnu vakið athygli fyrir ummæli um Grænland, en samkvæmt umfjöllun miðilsins hefur hann dregið úr hótunum um að beita hervaldi og vilji nú frekar reyna að ná fram samkomulagi með öðrum hætti.
Þjóðaratkvæði og gríðarlegur kostnaður
Í frétt DailyMail kemur fram að á Grænlandi búi um 57 þúsund manns og að heildarkostnaður slíks tilboðs gæti numið þúsundir milljarða króna ef greitt yrði til allra.
Þar er einnig bent á að hugmyndin myndi væntanlega ráðast af því að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram og að afgerandi meirihluti samþykkti að Grænland gengi í Bandaríkin.
Dansk stjórnvöld hafa þó ítrekað sagt að Grænland sé ekki til sölu og að hugmyndir um innlimun fari yfir skýr mörk. Þá hefur forsætisráðherra Grænlands einnig hafnað því að eyjan verði hluti af Bandaríkjunum, að því er fram kemur í sömu umfjöllun.
Ruglaði saman Íslandi og Grænlandi
Í umfjöllun DailyMail er einnig tekið fram að Trump hafi ítrekað ruglað saman Íslandi og Grænlandi þegar hann talaði um málið.
Þar kemur fram að hann hafi á sama tíma rætt um tollamál og frestað hótunum um að beita tollum gagnvart ákveðnum ríkjum, en miðillinn bendir á að í orðræðunni hafi hann aftur farið rangt með og talað um „Ísland“ þegar umfjöllunin átti að snúast um Grænland.