Trump svarar heilsuþrasi og segir sig „heilsuhraustari en nokkru sinni“

Donald Trump Bandaríkjaforseti, sem nýverið varð 79 ára, hefur þurft að þola miklar getgátur um heilsu sína síðustu daga. Myndir sem sýna marbletti á höndum hans og bólgna ökklaliði hafa kveikt á sögusögnum á samfélagsmiðlum, og jafnvel leitt til þess að myllumerkið #whereistrump fór á flug um helgina.

Á Labor Day-hátíðinni hélt Trump sig fjarri opinberum viðburðum og spilaði í staðinn golf, sem ýtti undir orðrómana. Sumir fóru jafnvel svo langt að halda því fram að hann væri veikur eða látinn.

Auglýsing

Trump brást hins vegar sjálfur við á sunnudag með færslu á Truth Social þar sem hann skrifaði í hástöfum: „NEVER FELT BETTER IN MY LIFE“.

Bólgnir ökklar Trump vöktu spurningar um heilsufar hans, en læknar segja um algengt og saklaust ástand að ræða.

Hvítahúsið útskýrir marbletti og bólgur

Hvítahúsið hefur áður gefið út að forsetinn þjáist af langvinnu bláæðavandamáli sem valdi vægum bjúg í fótum. Læknir hans segir að um algengt og saklaust ástand meðal aldraðra sé að ræða, án þess að merki séu um alvarlegan hjarta- eða æðasjúkdóm.

Marblettirnir á höndunum eru sagðir stafa af stöðugu handabandi og notkun aspiríns í forvarnarskyni. „Þetta er ekkert sem veldur honum óþægindum,“ sagði Karoline Leavitt, talskona Hvíta hússins.

Fyrrverandi læknir Hvíta hússins, Ronny Jackson, gekk jafnvel lengra og fullyrti: „Donald J. Trump er heilsuhraustasti forseti sem þjóðin hefur nokkru sinni haft.“

Spjótum beint að orðrómum

Þrátt fyrir að varaforsetinn JD Vance hafi lýst því yfir í viðtali að hann væri „viðbúinn“ að taka við forsetaembættinu ef eitthvað kæmi fyrir, hafa bandarískir fjölmiðlar fengið staðfest að Trump sé í góðu formi.

Á sunnudag sást hann með barnabarni sínu, Kai Trump, á leið í golf, og virtist hinn hressasti.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing