Trump tilkynnir risaviðskipti við ESB – Evrópa ætlar að kaupa orku og vopn fyrir þúsundir milljarða

Donald Trump tilkynnti í dag um það sem hann kallar „stærstu viðskiptasamninga sögunnar“ við Evrópusambandið – samkomulag sem á að tryggja Bandaríkjunum gríðarlegan útflutning á orku, vopnum og fleiri vörum. Trump fullyrðir að ESB ætli að kaupa orku fyrir 750 milljarða dollara og fjárfesta fyrir 600 milljarða í Bandaríkjunum.

„Þetta er stærsta samkomulag sem gert hefur verið. Fólk gerir sér ekki grein fyrir hversu stórt þetta er,“ sagði Trump frá golfvellinum sínum í Turnberry í Skotlandi.

Auglýsing

Tollar lækkaðir – hergagnakaup aukin

Samkvæmt samkomulaginu eiga aðrir tollar að lækka og Evrópuríki að greiða verulega fyrir bandarísk hergögn. „Öll löndin munu opnast fyrir viðskiptum við Bandaríkin á núll tolli,“ sagði Trump og bætti við: „Þau ætla líka að kaupa mikinn hernaðarútbúnað. Við vitum ekki hversu mikinn ennþá.“

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, staðfesti samkomulagið og sagði það mikilvægt skref í átt að „endurskipulagningu viðskiptasambandsins“. Hún lýsti þó viðræðunum sem erfiðum: „Við vissum að þetta yrði erfitt – og það var það. En við komumst að niðurstöðu.“

Epstein-spurning fær Trump til að missa „kúlið“

Þegar blaðamaður spurði hvort Epstein-málið hefði haft áhrif á hraða samningsins brást Trump reiður við: „Þú hlýtur að vera að grínast. Þetta hefur ekkert með það að gera. Enginn nema þú myndir spyrja svona.“

Golf, vindmyllur og stór orð

Trump hélt áfram að nýta tækifærið til að hrósa sjálfum sér – og gagnrýna aðra. Hann kvartaði sáran yfir vindmyllum sem „spilla útsýninu“ frá golfvellinum sínum. „Þær eyðileggja landslagið og drepa fugla,“ sagði hann.

Á meðan hann varði annan dag sinn á Turnberry með syni sínum Eric, sagðist hann vera að hitta „fjölda áhrifafólks“ sem ætla að dvelja á vellinum. „Mörg stór nöfn. Við erum að hitta marga. Þetta er vinnuferð – en ég er líka að slá,“ sagði hann.

Vonast til að „fella tollana niður í 15%“

Trump staðfesti að markmiðið væri að ná 15% föstum tollum á bíla og aðrar vörur, en útilokaði að það verði lægra. Von der Leyen setti líkurnar á endanlegu samkomulagi í 50%.

„Enginn þakkar okkur fyrir hjálpina til Gasa“

Trump kvartaði einnig yfir skorti á viðurkenningu fyrir mannúðaraðstoð Bandaríkjanna til Gasa. „Enginn nefnir það. Enginn talar um það,“ sagði hann og hvatti önnur ríki til að leggja meira af mörkum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing