Tveir öryggisverðir í bíl vakta jólageitina við IKEA allar nætur: „Alltaf. Alla nóttina“

Jólageitin sem stendur fyrir utan IKEA í Garðabæ er vöktuð af tveimur öryggisvörðum í bíl allar nætur. Þetta kom fram í innslagi Berglindar Festival í Vikunni með Gísla Marteini í gærkvöldi. Horfðu á innslagið hér fyrir ofan.

Jólageitin var brennd í nóvember í fyrra og vakti það mikla athygli enda birtu fjölmiðlar myndband úr öryggismyndavél af geitinni á meðan hún brann til kaldra kola. Í júní á þessu ári voru brennuvargarnir, tvær konur og einn karlmaður, dæmd fyrir verknaðinn og þurfti hvert þeirra að greiða 150 þúsund krónur í sekt sem rann beint til ríkissjóðs.

IKEA ætlar augljóslega ekki að láta þetta endurtaka sig en hingað til hefur jólageitin „aðeins“ verið vöktuð með öryggismyndavélum allan sólarhringinn. Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA, sagði í viðtali við Berglindi Festival að myndavélarnar séu enn á sínum stað. „Allar nætur eru menn hérna í bíl. Alltaf. Alla nóttina,“ sagði hann.

Saga jólageitarinnar er þyrnum stráð. Fyrsta geitin var sett upp árið 2010 en hún varð brennuvörgum að bráð aðfaranótt Þorláksmessu. Ári síðar fauk geitin um koll en var svo reist við og stóð fram yfir jól. Sannkallað jólakraftaverk!

Geitin var svo aftur brennd árið 2012 en IKEA gafst ekki upp og setti upp nýja fyrir jól. Árið 2013 var sett upp rafmagnsgirðing til að reyna að hefta för brennuvarga en þá gripu veðurguðirnir aftur til sinna ráða og fauk hún um koll í miklu roki. Að sjálfsögðu var hún reist við á ný.

Árið 2014 fékk hún að standa óáreitt á einhvern ótrúlegan hátt en ári síðar kviknaði í henni út frá jólaseríu. Hún var svo enn og aftur brennd í fyrra en frægt var að snör viðbrögð öryggisvarðar urðu til þess að brennuvargarnir náðust. Hann elti brennuvargana frá Kauptúni og í Grímsbæ, þar sem lögregla náði þeim.

Auglýsing

læk

Instagram