Ungir menn stíga fram og tjá sig um „AI Mastermind“ námskeið Sergio Herrero

Fyrir nokkrum dögum greindi Nútíminn frá ungum manni að nafni Sergio Herrero sem hefur kynnt svokölluð „AI Mastermind“ námskeið á samfélagsmiðlum.

Þar er því haldið fram að þátttakendur séu hvattir til að taka milljónalán til að „fjárfesta í sjálfum sér“ með loforðum um skyndigróða með gervigreind.

Íslensk ungmenni hvött til að taka milljóna lán fyrir „gervigreindar námskeiði“ – Sjálfskipaður „gúru“ lofar ævintýralegum gróða

Auglýsing

Nú hafa fleiri stigið fram og lýst eigin reynslu af námskeiðum Sergio.

Allir sem sendu reynslusögur sínar gerðu það undir nafni til að Nútíminn gæti staðfest að um raunverulega einstaklinga væri að ræða.

Þeir vildu þó ekki að nöfn þeirra yrðu birt með reynslusögunum.

„Pressaði á mig til að taka út pening sem mamma var að passa fyrir mig“

Einn viðmælenda Nútímans, ungur Íslendingur sem kynntist Sergio í gegnum Instagram, segir að sambandið hafi byrjað sakleysislega þegar hann fylgdi Sergio af einskærri forvitni vegna færslna hans um gróða og gervigreind.

Sergio hafi strax sent skilaboð og spurt af hverju hann hefði fylgt honum, og eftir nokkur skilaboð hafi hann boðið honum á Zoom fund.

„Á fundinum fór hann að tala um gamla ömurlega lífið sitt, að vinna 9–5 og ég var sammála honum. Hann sagði svo frá því hvernig hann tók lán hjá kærustu sinni, ömmu og afa til að fjárfesta í einhverju námskeiði sem kostaði 50 þúsund dollara. Hann endurtók þetta trekk í trekk og spurði mig aftur og aftur hvort ég væri action taker,“ segir hann.

„Hún komst í samband við tengdaföður hans sem sagði að Sergio væri ekki að græða þennan pening, að hann lifði á sölu námskeiðanna.“

Þegar hann spurði hvað námskeiðið kostaði kom í ljós að það væri á bilinu sex til tíu þúsund dollara, eða allt að ein og hálf milljón króna.

„Ég sagði honum að ég ætti sparnað á húsnæðisreikningi sem mamma mín er með læstan, og þá byrjaði hann að þrýsta á mig að biðja hana um að taka hann út. Ég sagði honum að það kæmi ekki til greina, en hann hélt áfram og sagði að hún væri ‘föst í gamla hugsunarhættinum’ og að ég ætti ekki að hlusta á hana.“

Hann greiddi Sergio að lokum 40 þúsund króna tryggingargjald eftir mikla sannfæringu og sölutal.

Daginn eftir vildi hann hætta við, en segir það hafa tekið Sergio sex klukkustundir og fjölda skilaboða áður en hann fékk endurgreitt, en hann fékk þó endurgreitt.

„Ég fékk peninginn loksins til baka, en mér hefur ekki dottið í hug að hafa samband við hann aftur,“ segir hann.

„Þeir sem borguðu meira fengu að fara til Dubai – og selja námskeiðið áfram“

Annar viðmælandi segir að hann hafi fylgst með hópi Íslendinga sem greiddu meira en milljón krónur fyrir aðgang að „Mastermind“ námskeiði hjá Sergio.

Þeir sem greiddu hæstu upphæðir fengu að fara út til Dubai, þar sem Sergio er búsettur.

Ekki fékkst staðfesting hvort þeir hefðu sjálfir þurft að greiða fyrir flugfarið.

„Þegar spurt var hann um sönnun á gróða sínum, þá sýndi hann bara þann pening sem nemendur höfðu greitt honum. Núna eru þessir nemendur, sem eru hjá honum í Dubai, farnir að hringja í vini sína og aðra á Íslandi og reyna að fá þá til að kaupa sama námskeið,“ segir heimildarmaðurinn.

Hann segir að þeir fái 100–200 þúsund króna bónus fyrir hvern sem þeir ná að sannfæra.

„Þetta er klassískt pýramídasvindl. Þeir sem eru komnir inn eru nú orðnir sölumenn fyrir næsta stig í keðjunni.“

„Allt námskeiðið var bara söluræða“

Fleiri sem rætt var við segja frá svokölluðu „free masterclass“ námskeiði sem í raun hafi verið sölufundur.

Einn þeirra segir að námskeiðið hafi staðið í um þrjá tíma og aðeins síðustu 20 mínúturnar hafi fjallað lauslega um „AI viðskipti“.

„Meirihluti tímans fór í að Sergio talaði um lífssöguna sína og hvernig hann ‘sleppaði úr kerfinu’. Hann var mjög karismatískur og notaði mikið af setningum eins og ‘ef þú sefur á þessu, þá ertu að segja við sjálfan þig að þú viljir vera blankur’. Þetta var sálfræðilegur þrýstingur allan tímann.“

Þátttakandinn segir að eftir námskeiðið hafi hann bókað Zoom fund til að fá fullan aðgang að „Mastermind“ námskeiði.

„Ég spurði hvort hann gæti sýnt mér bankayfirlit úr Íslandsbanka eða Landsbanka og þá henti hann mér út úr námskeiðinu“

„Ég átti ekki fyrir því, en hann sagði að ég gæti borgað 400 dollara tryggingargjald til að tryggja pláss. Ég gerði það, en mamma mín varð tortryggin og fór að skoða hann. Hún komst í samband við tengdaföður hans, sem sagði að Sergio væri ekki að græða þennan pening, að hann lifði á sölu námskeiðanna.“

Að lokum fékk viðmælandinn peninginn sinn endurgreiddan.

„Ég slapp með skrekkinn,“ segir hann.

„Henti mér út þegar ég bað um sönnun“

Einn sem sat fyrsta „masterclass“ hjá Sergio segir að fréttaflutningur Nútímans hafi verið „alveg spot on“.

Hann lýsir kennslunni sem endalausri söluræðu þar sem Sergio reyndi að láta þátttakendur skrifa „W“ eða „Bókaður“ í spjallið til að taka upp skjámynd og nota sem vitnisburð á síðuna sína.

„Hann lét sem allir væru ánægðir, sem var ekki rétt. Þegar ég spurði hann um sönnun fyrir tekjum sínum sýndi hann bara skjámyndir úr einhverju Emirates forriti. Ég spurði hvort hann gæti sýnt mér bankayfirlit úr Íslandsbanka eða Landsbanka, þá henti hann mér út úr námskeiðinu,“ segir hann.

Hann komst aftur inn í kennsluna með nýjum aðgangi og þá hafi Sergio sýnt mynd af auglýsingu á Times Square sem átti að sanna velgengni fyrirtækis hans, „PropelSolar“.

„Ég komst seinna að því að það fyrirtæki hefur aldrei verið til og myndin er fölsuð. Þetta var einfaldlega svindl.“

Nokkrir vörðu Sergio en vildu ekki svara frekari spurningum

Eftir birtingu fyrri fréttar sendu tveir einstaklingar Nútímanum skilaboð þar sem þeir sögðust vera nemendur Sergio og kvörtuðu yfir lélegum fréttaflutningi.

Annar þeirra skrifaði:

„Þessi frétt um Sergio er bara svo langt frá því að vera sönn. Ég er einn af nemendum hans og sé árangur. Hann er meira en tilbúinn að taka viðtal við ykkur ef þið viljið gera almennilega frétt.“

Þegar þeir voru beðnir um að svara spurningum um hvernig námskeiðin hefðu skilað árangri, vildi hvorugur þeirra gera það.

Annar sagðist þó hafa tjáð sig við Vísi því hann „treysti þeim betur til að fara með rétt mál“ og sagði að ef blaðamður vildi frekari upplýsingar gæti hann lesið þær á Vísi.is.

Sergio Herrero sjálfur hefur einnig fengið beiðni um viðtal, en ekki svarað þegar fréttin er skrifuð.

Hefur þú jákvæða reynslu af námskeiðum hjá Sergio?

Nútíminn óskar eftir aðilum sem hafa jákvæða reynslu af námskeiðum Sergio og vilja svara nokkrum spurningum um hvernig þau hafa skilað árangri.

Hægt er að senda tölvupóst á ritstjorn@nutiminn.is og er fullum trúnaði heitið.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing